Grunnskólamót Suðurlands í Skák

Grunnskólamót Suðurlands í skák fór fram á Flúðum föstudaginn 19. apríl. Vallaskóli var með góða skráningu á mótið en alls 33 nemendur tóku þátt.

Í flokki 5. – 7. bekkjar varð Magnús Tryggvi Birgisson í 3. sæti og í flokki 8. – 10. bekkjar  varð Kristinn Guðni Maríasson í 3. sæti. Aðrir stóðu sig með prýði og voru skólanum til mikils sóma.

Keppendur frá Vallaskóla – Vallaskóli 2024 (GBS)
Sigurvegarar í flokki 8.-10. árgangs – Vallaskóli 2024 (GBS)
Vallaskóli 2024 (GBS)
Sigurvegarar í flokki 5.-7. árgangs – Vallaskóli 2024 (GBS)