Göngum í skólann

Vallaskóli hefur ákveðið að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Landlæknisembættisins, mennta- og menningar-málaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Umferðarstofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla.


Göngum í skólann verður sett miðvikudaginn 7. september og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 5. október. Þetta er í fimmta sinn sem verkefnið er haldið hér á landi og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt.

Hreyfing og öryggi
Meginmarkmið verkefnisins er að hvetja nemendur til þess að ganga eða hjóla til og frá skóla með því að auka færni nemenda til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta og umhverfismálum og það hversu ,,gönguvænt” umhverfið er.

Milljónir taka þátt
Á síðasta ári tóku milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.gongumiskolann.is

Frumraun
Þátttaka Vallaskóla nú er frumraun okkar  í þessu verkefni og finnst okkur mikilvægt að allir séu upplýstir. Undirbúningur er vel á veg kominn og eru allir mjög jákvæðir og áhugasamir að taka þátt og standa sig fyrir hönd Vallaskóla.

Göngum í skólann í okkar skóla
Skólinn hefur nú þegar verið skráður til leiks og við hvetjum alla til þess að taka þátt. Hugmyndin er að vera með ýmsar uppákomur þann mánuð sem Göngum í skólann stendur yfir. Einnig hvetjum við ykkur kæru foreldrar/forráðamenn til þess að nýta ykkur verkefnið og þá umræðu sem skapast þennan mánuðinn til þess að ræða þessi mál við börnin ykkar og fara öruggustu leið í skólann með yngstu börnunum.

Vonandi gengur þetta vel hjá okkur. Verum endilega opin fyrir þessu framtaki og jákvæð og nýtum haustið til að vekja athygli á hreyfingu og öryggi barnanna okkar á leiðinni í skólann.

Endilega skoðið glæsilega heimsíðu átaksins http://www.gongumiskolann.is/


Ef þið hafið einhverjar spurningar þá hafið samband við undirritaðan.

Gangi ykkur vel.

Guðmundur Sigmarsson
gudsig@vallaskoli.is