Gjöf frá Foreldrafélagi Vallaskóla

Foreldrafélag Vallaskóla færði skólanum tvö glæsileg gasgrill á dögunum. Grillin komu í góðar þarfir á vorhátíðardegi skólans sem fram fór 6. júní en þar grilluðu starfsmenn skólans  pylsur ofan í nemendur og starfsfólk. Á myndinni má sjá Pál skólastjóra Vallaskóla ásamt Maríu Ágústsdóttir kennara og gjaldkera foreldrafélagins spreyta sig á grillmennskunni ásamt Ósk Sveinsdóttur stuðningsfulltrúa.

Starfsfólk og nemendur Vallaskóla færa foreldrafélaginu miklar og góðar þakkir fyrir höfðinglega gjöf sem sannarlega kemur að góðum notum.

 

Vallaskóli 2023 (PS)