Fyrsta Hinseginvika Árborgar

Forvarnateymi Árborgar stendur fyrir fyrstu Hinseginviku Árborgar dagana 17.-23. janúar.

Börnum í 7.-10. bekkjum skólans verður sýnt klukkustundar myndband frá Samtökunum ’78 í vikunni og umræður teknar með kennurum. Stefnt er á að fá einnig fræðslu frá Samtökunum ’78 inn í skólann um leið og ástand leyfir.
Forvarnateymi Árborgar, í samvinnu við Íslandsbanka mun einnig gefa öllum börnum í 1. bekk í Árborg bókina Vertu þú! sem segir litríkar sögur af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni. Sjá nánar hér:
Mánudaginn 17. janúar kl. 20:30 verður TEAMS fyrirlestur fyrir íbúa Sveitarfélagsins Árborg. Tengil á fyrirlesturinn má finna í þessari frétt: https://www.arborg.is/frettasafn/hinseginvika-arborgar-haldin-i-fyrsta-sinn
Í þessari grein er einnig tengill þar sem allir geta sent inn nafnlausar spurningar og mun fyrirlesarinn taka þær fyrir í lok fyrirlestursins. Nafn spyrilsins mun hvergi koma fram. Við hvetjum alla foreldra til að horfa á fyrirlesturinn, opna hug sinn fyrir málefninu og taka þátt í að fagna fjölbreytileikanum.

Að lokum hvetjum við fólk til að klæðast regnbogalitum miðvikudaginn 19. janúar og sýna þannig samstöðu og stuðning.

Mynd af: https://www.dfs.is/2022/01/10/hinseginvika-arborgar-haldin-i-fyrsta-sinn/