Guðbjartur setur fundinn kl.17:05, býður fundargesti velkomna og sérstaklega velkomna nýja fulltrúa nemenda í skólaráði.
1. mál: Guðbjartur skólastjóri les og fer yfir ákvæði grunnskólalaga um skólaráð fyrir nýja fulltrúa.
2. mál: Endurskoðuð skólanámskrá Vallaskóla lögð fram.
Umræður þar sem meðal annars koma fram upplýsingar um vinnuferlið og sú staðreynd að skólanámskrá eigi að vera í stöðugri endurskoðun.
3. mál: Um helstu viðfangsefni Vallaskóla á þessu hausti umfram hið hefðbundna skólastarf.
Guðbjartur skólastjóri leggur fram blað með yfirskriftinni ,,Fáein minnisatriði“ þar sem fram koma ýmsar upplýsingar um umfang, starfsemi og nýbreytni í Vallaskóla. Umræður.
4. mál: Önnur mál.
Hjörtur spyr um fjármál Vallaskóla í ljósi breytts þjóðfélagsástands og kemur fram í svari Guðbjarts að mikils aðhalds þurfi að gæta í öllum rekstri.
Fleira ekki rætt og fundi slitið undir sérlega góðum kaffiveitingum 17:50.
Jón Özur Snorrason
Hrönn Bjarnadóttir
Guðbjartur Ólason
Svanfríður K. Guðmundsdóttir
Guðrún Eylín Magnúsdóttir
Guðrún Runólfsdóttir
Daldís Perla Magnúsdóttir
Hjörtur Þórarinsson