Nemendur í leiklistavali Vallaskóla frumsýndu leikritið Footloose við mikinn fögnuð áhorfenda.
Leikritið hefur verið í undirbúningi allt skólaárið og voru æfingar oft langt fram á kvöld þannig að hægt er að segja að áhuginn og metnaðurinn sé mikill í þessum ungu upprennandi leikurum.
Frumsýningin gekk feykilega vel og augljóst að þarna eru miklir hæfileikar.