Framhald skólahalds í Vallaskóla vegna sóttvarnaaðgerða frá 1. janúar 2021 til og með 28. febrúar 2021.

Vallaskóla 29.12.2020

Kæru fjölskyldur.
Komiði öll sæl og gleðilega hátíð.Í þessu bréfi fjöllum við um einungis eitt atriði:
1. Framhald skólahalds í Vallaskóla vegna sóttvarnaaðgerða frá 1. janúar
2021 til og með 28. febrúar 2021.

Nánar:
1. Ný reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar nr. 1306/2020 var
samþykkt af ríkisstjórninni 21. desember síðastliðinn (sjá nánar hér
https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/hrn/nr/1306-2020).
Reglugerðin eykur sem betur fer á frekari tilslakanir gagnvart skólastarfinu (sjá
4. gr.) Í stuttu máli þýðir það að skólastarf mun fara í eðlilegt horf frá og með 5.
janúar 2021, þó með tilliti til neðangreindra takmarkana.

Helstu takmarkanirnar eru eftirfarandi (hafa fyrst og fremst áhrif á starfsfólk
skólans):
 Skólinn verður á stigi sóttvarnasvæða. Nemendur og starfsfólk má fara á
milli svæða í skólanum, þó ekki að nauðsynjalausu. Allir verða sem fyrr
beðnir um að gæta vel að sínum eigin sóttvörnum.

 Fjöldatakmarkanir nemenda í rými miðast við 50 einstaklinga í öllum
árgöngum. Nemendur mega blandast á milli nemendahópa. Undantekning
frá fjöldatakmörkun nemenda er leyfð á sameiginlegum svæðum skólans,
við innganga, í anddyri, á salerni, á göngum, mötuneyti og í skólabíl.

 Allir nemendur geta nú nýtt þjónustu mötuneytis skv. matartímum í
stundatöflu. Einhver stýring verður á nemendum inn og út úr matsalnum
og skólastjórnendur munu verða á staðnum vegna þessa, einnig vegna
sótthreinsunar og þrifa á milli hópa.

 Fjöldatakmarkanir starfsfólks í rými miðast nú við 20 einstaklinga svo
lengi sem hægt er að tryggja 2 m fjarlægðarmörk. Annars tekur
grímuskylda við. Starfsfólki verður heimilt að fara á milli nemendahópa.
Starfsfólk skal að öllu jöfnu notast við andlitsgrímur á sameiginlegum
svæðum skólans.

 Foreldrar og forráðamenn skulu eftir sem áður ekki koma inn í
skólabyggingar. Sé það nauðsynlegt ber þeim að nota grímu og hanska.
Að lokum minnum við alltaf á þessi góðu skilaboð:
Ágætt er að hafa í huga að ekki er ætlast til að nemendur sem ekki deila saman
rými í skólanum séu að hittast eftir að skóla lýkur. Sjá betur hér
(https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item40636/Samkomutakmarkani
r-og-b%C3%B6rn-2.10.2020.pdf) um Samkomutakmarkanir og börn.

Gætið að smitgát öllum stundum og munið að við erum öll almannavarnir.

Kær kveðja.
Starfsfólk Vallaskóla.