Forvarnardagurinn

Miðvikudaginn 4. október sl. var Forvarnardagurinn haldinn um allt land og stóð Forvarnarhópur Árborgar fyrir glæsilegri dagskrá eins og síðustu ár. Nemendur 9. bekkja úr grunnskólunum þremur í sveitarfélaginu var skipt upp í hópa þvert á skólana og hóparnir sóttu viðburði og fengu kynningar á ýmsu sem tengist forvörnum á einn eða annan hátt. Nemendur sóttu fyrirlestur hjá fulltrúa lögreglunnst sem fjallaði um forvarnarmál tengd henni, Golfklúbbur Selfoss kynnti sína starfsemi, Velferð fjallaði um sjálfsmynd, Félagsmiðstöðin Zelsíuz var með hópefli og einnig fengu nemendur kynningu á líkamsrækt í World Class.

Dagskráin hófst með setningu í Selfossbíói en þar ávarpaði formaður fræðslunefndar, Sandra Dís Hafþórsdóttir, þátttakendur. Nemendur hlýddu á ávarp frá forseta Íslands (á skjá) og tónlistarkonan Karitas Harpa mætti og hvatti nemendur til dáða.

Deginum lauk svo með uppgjöri hópanna á verkefnum af vefsvæðinu www.forvarnardagur.is og grillveislu í anddyri Vallaskóla.

Forvarnarhópur vill koma á framfæri þakklæti til starfsmanna og styrktaraðila.

Páll Sveinsson, aðstoðarskólastjóri í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, Hermann Ö. Kristjánsson, deildarstjóri eldri deildar Sunnulækjarskóla, Guðmundur Sigmarsson, deildarstjóri efsta stigs Vallaskóla, Gissur Jónsson, framkvæmdastjóri Umf. Selfoss, Gunnar E. Sigurbjörnsson, tómstunda- og forvarnafulltrúi Sv. Árborgar.

Mynd: Vallaskóli 2017.
Mynd: Vallaskóli 2017.
Mynd: Vallaskóli 2017.
Mynd: Vallaskóli 2017.