Á döfinni

Læsissáttmáli Heimilis og skóla

Kynning verður á læsissáttmála Heimilis og skóla í Vallaskóla fimmtudaginn 1. september kl. 18:00. Foreldrar/forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta. Kynningin fer fram í Austurrýminu á Sólvöllum. Gengið er inn Engjavegsmegin.

Kynningarfundur um rafrænt nám á efsta stigi

Fyrir liggur hjá okkur á elsta stigi Vallaskóla að allt námsefni verður aðgengilegt á google classroom og stór hluti þess unninn í gegnum það kerfi. Til að kynna foreldrum og forráðamönnum námsumhverfið okkar verður boðið upp á stuttan kynningarfund mánudaginn þann 29. ágúst. Farið verður yfir helstu hluti varðandi Classroom og hvernig þið getið fylgst með …

Kynningarfundur um rafrænt nám á efsta stigi Lesa meira »

Skólasetning skólaárið 2016-2017

Skólasetning fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla. Kl. 10:00  Nemendur í 2.−5. bekk,  f. 2006−2009. Kl. 11:00  Nemendur í 6.−10. bekk,  f. 2001−2005. Nemendur í 1. bekk (f. 2010) og forráðamenn þeirra eru boðaðir sérstaklega í viðtöl eins og þegar hefur verið tilkynnt. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum þennan fyrsta skóladag.