Á þessum krefjandi og sérstöku tímum grípa kennarar unglingastigs tækifærið til að prófa sig áfram í fjölbreyttum kennsluháttum.
Rikki kennari stýrði stærðfræðitíma í 10. bekk í gegnum Google Meet. Krakkarnir eru í minni hópum, hver í sinni stofu. Nemendur komu með óskir um ákveðin dæmi sem kennarinn útskýrði með því að teikna þau upp í ipad í gegnum fjarfundarforritið.
Tilraunin fór vel fram og munu frekari tilraunir fara fram næstu daga.