„Efldu barnið þitt“ – fyrirlestur í Sunnulækjarskóla þann 16. mars kl 20:30.
Fésbókarsíða viðburðarins, sjá hér.
Foreldrafélag Sunnulækjaskóla og Samborg bjóđa til fyrirlestursins ,,Út fyrir kassann“ með Bjarna Fritzsyni og Kristínu Tómasdóttur
Á fyrirlestrinum verður meðal annars leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
1. Af hverju út fyrir kassann?
2. Hvernig getum við styrkt sjálfsmynd barnanna okkar?
3. Hvernig getum við hjálpað börnunum okkar að ná betri árangri?
4. Hvernig getur núvitund eflt börnin okkar?
Í lokin verður opið spjall með Bjarna Fritzsyni og Kristínu Tómasdóttur í pallborði.
Allir foreldrar og forráðamenn í Árborg velkomnir!
Vonumst til þess að sjá sem flesta.
Léttar veitingar í boði.