Olga Sveinbjörnsdóttir náms- og starfsráðgjafi hefur að undanförnu verið að fræða nemendur í 10. bekk um áhugasviðskönnun sem Bendill kallast. Hér má sjá Olgu í heimsókn sinni í 10. SAG þar sem hún fræddi nemendur um Bendil. Áhugasviðskönnunin er hönnuð til að aðstoða nemendur í að taka ákvarðanir um nám og/eða starf. Í fræðslu um náms- og starfsval er lögð áhersla að fólk velji nám og síðar starf sem hæfir áhuga þeirra. Þetta er mikilvæg fræðsla og ýtir undir ánægju í starfi og að hverjum og einum vegni vel á vinnumarkaði síðar á ævinni. Áhugasviðskönnunina þarf að leggja fyrir á ákveðinn hátt og sagði Olga m.a. frá því að þeir sem leggja könnuna fyrir hafa farið á sérstakt námskeið í notkun Bendils. Þannig sé reynt að tryggja sem best notkun könnunarinnar og úrvinnslu þeirra gagna sem fram koma.
[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]