Hin árlega árshátíð í 8., 9. og 10. bekkjar Vallaskóla verður haldin í íþróttahúsi Vallaskóla, fimmtudaginn 1. desember 2016.
Hátíðarkvöldverður fyrir 10. bekk
Kvöldið hefst á hátíðarkvöldverði fyrir 10. bekk í umsjón landsliðskokksins Sigurðar Ágústsonar. Húsið opnar kl. 18.00 en borðhald hefst kl. 18:30. Boðið verður upp á tveggja rétta kvöldverð.
Matseðill
Forréttur: Villisveppasúpa
Aðalréttur: Lambafillet með hasselback kartöflum, nípumauki, grilluðum nípum og sveppasósu
Eftirréttur: Volg súkkulaðikaka með ís
Hátíðardansleikur fyrir 8.-10. bekk:
Hátíðardansleikur verður síðan í íþróttasalnum fyrir nemendur í 8. – 10. bekk.
Húsið opnar fyrir nemendur í 8. og 9. bekk kl. 20:30 og dansleiknum lýkur á miðnætti. Fram koma Úlfur úlfur og DJ Óli Geir.
Hætt verður að hleypa inn í húsið kl. 21.30. Í pásu á dansleiknum verður happadrætti en á hverjum miða er númer og svo verður hægt að vinna sér inn fleiri happadrættismiða með því að leysa karnival-þrautir í andyrinu (þema árshátíðarinnar er einmitt Carnival en þó eiga nemendur að klæða sig upp í sitt fínasta púss).
Ljósmyndari verður á staðnum eins og undanfarin ár. Hægt er að kaupa myndir síðar hjá NEVA. Það verður auglýst síðar.
Miðasala fer fram í skólanum dagana 24. nóvember til og með 29. nóvember.
Verð fyrir kvöldverð og dansleik er 5.000kr. (10. bekkur).
Verð fyrir dansleik er 3.000 kr. (8.-10. bekkur).
Dansleik lýkur um kl. 24.00. MIKILVÆGT ER AÐ FORELDRAR SJÁI UM AÐ BÖRN SÍN FARI BEINT HEIM AF DANSLEIKNUM!
Kærar kveðjur,
Nemendafélag Vallaskóla – NEVA, umsjónarmaður félagsstarfs og stjórnendur Vallaskóla