Þann 25. nóvember hófst alþjóðlegt átak gegn ofbeldi og stóð til 10. desember.
Þema átaksins var liturinn appelsínugulur og víða í sveitarfélaginu mátti sjá appelsínugulum fánum flögguðum. Átakið snérist um að segja nei við öllu ofbeldi.
Ofbeldi getum verið að ýmsum toga og allir geta orðið fyrir ofbeldi
Inn á heimasíðu 112 er að finna ýmsar upplýsingar um ofbeldi og birtingarmyndir þess. Þar er einnig hægt að finna allkyns úrræði fyrir þau sem verða fyrir ofbeldi.
Flest allir þeir staðir sem bjóða þolendum ofbeldis upp á ráðgjöf og stuðning bjóða upp á netspjall og símatíma.
Þessi úrræði eru til staðar ef þig vantar ráðgjöf, hvort sem það er fyrir þig eða einhvern sem þú þekkir. Engu máli skiptir hversu langt síðan ofbeldið átti sér stað, það er alltaf hægt að fá hjálp.
Forvarnateymi Árborgar hefur verið starfrækt í 12 ár
Í dag kemur teymið saman mánaðarlega og samanstendur af fulltrúum frá ýmsum áttum samfélagsins. Í teyminu eru fulltrúar frá frístundaþjónustu, grunn- og leikskólum, fjölbrautaskólanum, HSu, lögreglunni, UMFs, velferðaþjónustu, skólaþjónustu og fulltrúar foreldra. Forvarnateymið ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd forvarnastarfs fyrir sveitarfélagið Árborg í samræmi við markaða stefnu í forvarnamálum.
Að auki við markaða stefnu bregst forvarnarteymið við þegar samfélagið kallar á auknar forvarnir er varðar ákveðið málefni.
Eitt af verkefnum forvarnateymis var að hrinda af stað átakinu “Árborg gegn ofbeldi” sem voru viðbrögð teymisins vegna aukinnar ofbeldishegðun ungmenna í sveitarfélaginu.
Þar er áhersla lögð á hnitmiðaða fræðslu frá fag- og viðbragðsaðilum til forsjáraðila og einnig myndband þar sem ungmenni er hvött til þess að eiga í heilbrigðum samskiptum og efla styrkleika sína. Við hvetjum ykkur til þess að skoða þessi myndbönd, taka samtalið með börnunum ykkar og opna umræðuna um þetta þarfa málefni.
Fyrir hönd forvarnateymis Árborgar
Dagbjört | Forvarnafulltrúi
Sigga Birta | Teymisstjóri barnateymis velferðarþjónustu