Áhugasviðskynning í 7. bekk

Undanfarnar vikur hafa nemendur í 7. árgangi verði vinna við að búa til kynningu á áhugasviði sínu. Máttu þeir nota margvíslega miðla við að kynna sitt áhugasvið. Í þessari viku buðu nemendur svo foreldrum sínum öðrum sem vildu að skoða árangur erfiðis síns. Er skemmst frá því að segja að fullt var út úr dyrum hjá þeim enda margt áhugavert sem bar fyrir augu.

Í myndagalleríinu hér fyrir neðan er nokkrar myndir frá sýningunni.