Þemadagar hjá yngsta- og miðstigi Vallaskóla stóðu yfir dagana 27. febrúar-1. mars.
Yfirþemað í ár var „Á grænni grein“ og vísar í umsóknarferli skólans um að verða grunnskóli á Grænni grein og fá að flagga grænfána Landverndar.
Markmiðið að þessu sinni var að vinna með umhverfismennt og endurnýtingu ásamt því að tengja hugtakið Á grænni grein við vellíðan, hreyfingu og góð samskipti og samvinnu. Stöðvarnar voru margar og fjölbreyttar og voru starfsmenn sammála um að þetta hafi heppnast vel.
Á yngsta stigi var unnið með sköpun úr endurnýtanlegu efni á nokkrum stöðvum. Börnin bjuggu til hljóðfæri og fengu jafnframt að spila á þau og skapa tónlist. Í heimilisfræði unnu þau með fá hráefni og fengu m.a. fræðslu um matarsóun og fleira. Þau fóru í jóga og hugarfrelsi, bjuggu til gjafapoka, kort og umslög úr gömlum blöðum svo eitthvað sé nefnt.
Á miðstigi var líka unnið með endurnýtanlegan efnivið. Börnin bjuggu til mósaík-listaverk, vefuðu úr gömlum textílefnum, fóru í Zúmba og hreyfingu, bjuggu til veggspjöld með fræðslu um umhverfismennt og jörðina okkar, endurnýttu gamla boli og breyttu þeim í innkaupapoka og sitthvað fleira.
Jafnframt fóru nemendur af báðum stigum út í hreyfingu og leiki. Yngsta stigið fór í göngutúr um nærumhverfið og í leiki og miðstigið var með útiratleik. Við þökkum foreldrum kærlega fyrir innlitið á föstudaginn. Það var gaman að sjá hvað margir komu í heimsókn. Við hvetjum ykkur til að aðstoða okkur við innleiðingu Grænfánans. Hjálpumst að, flokkum, endurnýtum og hugsum vel um jörðina okkar.
Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG) Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG) Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG) Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG) Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG) Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG) Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG) Vallaskóli 2019. Þemadagar (HSG)