Hjóladagur hjá 2. árgangi

Í síðustu viku var hjóladagur í 2. árgangi og mættu nemendur með reiðskjóta af ýmsum stærðum og gerðum. Þó veður hafi verið vott í upphafi rættist fljótt úr og aðstæður til hjólreiða urðu hinar ágætustu. Lögreglan sá um að setja upp hjólabrautir og leiðbeina krökkunum varðandi stillingu á hjálmum. Lögreglan skoðaði líka ástand hjóla krakkanna og límdir voru skoðunarmiðar á hjólin. Nemendur og kennarar voru ánægðir með daginn.