Svakalega lestrarkeppnin

Nemendu r í 1. – 7. árgangi tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni sem haldin var á landsvísu 15. september til 6. október.
Það eru rithöfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir sem standa að keppninni og er hún unnin í samstarfi við List fyrir alla, Reykjavíkurborg og Læsir lestrarappið.
Í ár voru það 108 grunnskólar á landinu sem tóku þátt og voru 30 efstu sætin tilkynntí beinu streymi í gær fimmtudag.
Í lok keppninnar sendu grunnskólar heildartölur sem reiknast í mínútum og er þeim deilt á heildarfjölda nemenda í skólunum. Þannig hafa allir grunnskólar, stórir og smáir möguleika á að vera í efstu sætum. Allur yndislestur og hlustun (ekki námsbóka) bæði heima og í skólanum er talinn með í keppninni.
Nemendur í Vallaskóla í 1. – 7. árgangi stóðu sig mjög vel og lásu þeir samtals 154143 mínútur eða um 500 mínútur á hvern nemanda að meðaltali.
Það var 4. árgangur sem stóð uppi sem sigurvegari í Svakalegu lestrarkeppninni í Vallaskóla þetta árið og veitti skólastjóri þeim viðurkenningaskjal af þessu tilefni.
Nú er bara að halda áfram að vera dugleg að lesa bæði heima og í skólanum og þessa dagana eru nemendur á yngsta- og miðstigi að fá afhendan lestrarsprett þar sem þeir eiga að halda áfram að æfi sig í lestrinum.

HÚRRA FYRIR NEMENDUM Í VALLASKÓLA