Svakalega lestrarkeppnin

Í gær 15.september hófst Svakalega lestrarkeppnin þar sem nemendur í 1. – 7. árgangi taka þátt.
Keppnin er á landsvísu og eru yfir 90 grunnskólar á landinu að taka þátt.  Keppnin stendur yfir í rúmar þrjár vikur, eða til og með 6. október og ætla nemendur að skrá þær mínútur sem fara í yndislestur (ekki námsbækur) bæði heima og í skólanum (einnig má skrá hlustun).
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðunni https://www.sogusmidjan.is/lestrarkeppnin. og einnig hafa umsjónarkennarar sent upplýsingar heim með tölvupósti.
Nú verður spennandi að sjá hversu margir lestrarhestar eru í Vallaskóla 🙂
Í tilefni svakalegu upplestrarkeppninnar sem 1. – 7. árgangur tekur þátt í mun bókasafnið kynna nokkrar bækur enn betur gert hefur verið áður. 🙂 Fyrsta kynningin hefur þegar verið hengd upp á vegg við bókasafnið.