Næstkomandi föstudag, 4. september, ætlum við að halda Treyjudaginn hátíðlegan hjá okkur í Vallaskóla.
Á Treyjudeginum klæðist fólk sinni uppáhalds íþróttatreyju til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Af því tilefni viljum við að sjálfsögðu hvetja alla nemendur og starfsfólk skólans til að mæta í íþróttatreyju þennan dag.
Nánari upplýsingar má finna á https://treyjudagur.is/
Við hlökkum til að sjá vonandi fullt hús af íþróttatreyjum á föstudaginn.

