Suðurlandsmótið í skák fór fram á Flúðum 9. apríl síðastliðinn. Keppendur á mótinu voru fimmtíu talsins og telft var í Félagsheimili Hrunamanna. Efsti keppandi í hverjum flokki ávann sér keppnisrétt á landsmótinu í skák sem haldið verður á Ólafsvík dagana 9.-10. maí. Vallaskóli átti nokkra keppendur á mótinu í unglingaflokki. Einn af þeim Magnús Tryggvi Birgisson stóð upp sem sigurvegari. Óskum við í Vallaskóla honum til hamingju með góðan árangur.
Hér hægt að lesa allt um Suðurlandsmótið í skák.

