Útskrift 10. árgangs fór fram síðastliðinn föstudag. Prúðbúnir og spenntir nemendur mættu í skólann sinn í síðasta skipti með foreldrum sínum og ættingjum og tóku við vitnisburði sínum. Nokkrar tilfinningaþrungnar ræður voru haldnar við þetta tilefni og svo fengu gestir að hlýða á stórkostleg tónlistaratriði. Góður dagur í alla staði sem endaði á kökuhlaðborði. Við kveðjum flottan hóp með þakklæti fyrir samveruna.
