Hefð er fyrir því að 7. bekkur fari í ferðalag að vori í Þórsmörk.
Þetta vorið var engin undantekning og skelltu spenntir 7. bekkingar sér í rútu og héldu af stað.
Veðrið var þungbúið en ekki létu ferðalangar það á sig fá og nutu útiverunnar í fallegu umhverfi Þórsmerkur.