Þemavika NEVA 13. – 17. maí

NEVA hefur skipulagt þemaviku í klæðnaði í næstu viku eða frá mánudeginum 13. maí til og með föstudeginum 17. maí.

Öllum nemendum skólans er frjálst að taka þátt, þetta er ekki skylda, það er hægt að taka þátt í bara einum degi eða í öllum fimm, eða eitthvað þar á milli.

Þemadagana má sjá á meðfylgjandi auglýsingu en fyrir þá sem ná ekki að opna auglýsinguna þá er þemavikan svona:

Mánudaginn 13. maí – Treyjudagur

Þriðjudaginn 14. maí – Náttfatadagur

Miðvikudaginn 15. maí – Gallabuxur og hvítur bolur/hvít peysa

Fimmtudaginn 16. maí – Hawai/sumarþema

Föstudaginn 17. maí – Fínn fössari eða Fancy friday

Hlökkum til að taka þátt í þessu, vonandi með sem flestum.

Góða skemmtun

NEVA