Starfsdagur og foreldra/nemendaviðtöl

Við minnum á að samkvæmt skóladagatali skólans er starfsdagur á mánudaginn 30. október næstkomandi og þriðjudaginn 31. október eru foreldra- og nemendaviðtöl.

Við hlökkum til að sjá nemendur og foreldra og langar okkur að vekja athygli á því að 10. árgangur verður með veitingasölu sem lið í fjáröflun fyrir útskriftarferð sem farin verður í vor og hvetjum fólk til að kíkja við hjá þeim.

Vöru- og verðlista fyrir veitingasöluna má sjá í nýjustu færslu á Facebook síðu skólans

Bestu kveðjur

Starfsfólk Vallaskóla