Bleikur dagur í Vallaskóla föstudaginn 20. október

Föstudaginn 20. október er bleikur dagur á landsvísu og við í Vallaskóla tökum að sjálfsögðu þátt í því.

Við hvetjum alla til að koma í einhverju bleiku og einnig má koma með sparinesti,  fernudrykk og sætabrauð (skemmtilegt að hafa það bleikt ef hægt er).
Það má ekki koma með gos og/eða nammi.