Aðalfundur Foreldrafélags Vallaskóla 6. september kl 20:00

Miðvikudagskvöldið 6. september næstkomandi fer fram aðalfundur foreldrafélagsins í Austurrými í Vallaskóla kl. 20:00.

Þar gefst foreldrum og forráðamönnum kostur á að láta til sín taka og að láta rödd sína heyrast. Mjög mikilvægt er að þar verði öflug og góð mæting.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í gefandi og skemmtilegu starfi!

Vallaskóli 2023 (PS)