Afmælisgjöf frá Foreldrafélagi Vallaskóla

Foreldrafélag Vallaskóla færði skólanum gjöf á afmælishátíð skólans 31. mars síðastliðinn.

Gjöfin var í formi spila og bóka, sannarlega vegleg og flott gjöf sem nýtist öllum nemendum skólans. Skólinn færi foreldrafélaginu hjartans þakkir fyrir gjöfina. Á meðfylgjandi mynd má sjá Maríönnu Jónsdóttur, formann foreldrafélagsins, færa Páli Sveinssyni skólastjóra gjöfina.

Vallaskóli 2023 (PS)