Foreldrabréf

Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í Vallaskóla.Með þessu bréfi vildum við minna á dagskrá næstu daga.Mánudaginn 31. október verður starfsdagur en þá verða nemendur í fríi.Þriðjudaginn 1. nóvember verða foreldraviðtöl haldin. Viðtölin fara fram í skólanum en foreldrar/forráðamenn panta viðtalstíma í Mentor. Umsjónarkennarar munu opna fyrir viðtalspantanir frá og með morgundeginum, 26. október.Áherslur viðtalsins verða lagðar á sjálfsmat og líðan nemenda. Sjá nánar upplýsingar frá umsjónarkennurum.Athugið að kennarar hafa leyfi til að dreifa viðtölum á bæði starfs- og foreldradag.Á viðtalsdaginn minnum við ykkur á að athuga með óskilamuni en þeim verður stillt upp á göngum skólans. Þeir munir sem ekki skila sér til réttra eigenda verða að lokum gefnir til Rauða krossins.Hlökkum til að sjá ykkur öll.Með kærri kveðju.Starfsfólk Vallaskóla.