Mikilvægar dagsetningar í mars og apríl

Vallaskóla 28. febrúar 2022Kæru fjölskyldur nemenda Vallaskóla

Mikilvægar dagsetningar framundan í mars- og aprílmánuði..    Miðvikudaginn 2. mars er skertur dagur og ber hann upp á öskudag.Nánar útskýrt í starfsáætlun skólans https://vallaskoli.is/skolinn/starfsaaetlun/ .Kl. 10:30 verður kennslu hætt og nemendur í 5.-10. árgangi sendir heim. Foreldrar eru því beðnir um að gera ráðstafanir vegna þessa.Boðið verður upp á gæslu fyrir 1.-4. árgang frá 10.30 þar til frístundastarfið hefst um kl. 13:00. Hádegisverður á sínum stað.1. og 2. árgangur verður á efri hæð Bifrastar en 3. og 4. árgangur í kjallaranum á Sólvöllum. Ef foreldrar vilja sækja barn sitt eða senda heim kl. 10.30 þurfa þeir að láta viðkomandi umsjónarkennara vita..    Samræmd könnunarpróf í 9. bekk sem vera áttu 8.-10. mars falla niður..    Miðvikudaginn 30. mars: Skóladagur Árborgar. Starfsdagur hjá starfsfólki og frí hjá nemendum..    Fimmtudaginn 31. mars: Árshátíð unglingastigs (nánar auglýst síðar)..    Þriðjudaginn 5. apríl: PISA-könnunin. Nemendur í 10. árgangi taka þátt..    Föstudagurinn 8. apríl: Síðasti skóladagur fyrir páskafrí.Hafið það sem allra best.Með kærri kveðju.Starfsfólk Vallaskóla.