Komdu að vinna með okkur

Í Vallaskóla eru eftirfarandi stöður lausar fyrir næsta skólaár:

  • Kennsla í forritun á miðstigi (5.-6. bekkur) vegna afleysinga, 50% staða.
  • Umsjónakennari í 5. bekk – Tvær 100% stöður
  • Umsjónakennari í 7. bekk, 100% staða
  • Sérkennari á yngsta stigi, 100% staða
  • Textíl/myndmenntakennari, 100% staða
  • Textílkennari vegna afleysinga, 81% staða með möguleika á 100% stöðu
  • Sérkennari á miðstigi, 100% staða
  • Leiklistarkennari á miðstigi (5.-7. bekkur), 73% staða.
  • Leiklistarkennari á unglingastigi (8.-10. bekkur), ásamt umsjón, 100% staða.
  • Tónmenntakennari á yngsta stigi (1.-4. bekkur) og miðstigi (5. bekkur), 81% staða með möguleika á 100% stöðu

 

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða skipulagshæfileika, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki. Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf grunnskólakennara.

Á skólaárinu 2021-2022 er reiknað með að nemendafjöldi skólans verði 610 nemendur í 1.-10. bekk og starfsmenn um 100 talsins, sjá www.vallaskoli.is.

Sækja skal um starfið á starfavef Árborgar, starf.arborg.is . Nánari upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri – gudbjartur@vallaskoli.is eða í síma 4805800.

Umsóknum fylgi leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2021. Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst 2021. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is.