Hefð hefur skapast fyrir því að á degi íslenskrar tungu að setja Stóru upplestrarkeppnina með formlegum hætti í Vallaskóla.
![](https://www.vallaskoli.is/wp-content/uploads/2017/12/upplestur3-300x112.jpg)
Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember ár hvert en þar sem þann dag bar upp á starfsdag í Vallaskóla þá var keppnin sett 21. nóvember. Allir nemendur í 7. bekk taka þátt í upphafi þangað til að valdir verða fulltrúar skólans sem taka þátt í Stóru upplestrarkeppninn á svæði Vallaskóla en í ár verður lokakeppnin haldin í Grunnskóla Þorlákshafnar.
Keppendur Vallaskóla frá síðasta ári lásu upp fyrir nemendur ljóðin frá því í keppninni í fyrra. Þetta voru þær Thelma Lind Sigurðardóttir, Lingný Lára Lingþórsdóttir og Svanlaug Halla Baldursdóttir.
![](https://www.vallaskoli.is/wp-content/uploads/2017/12/upplestur2-300x180.jpg)
![](https://www.vallaskoli.is/wp-content/uploads/2017/12/upplestur-300x225.jpg)