4. árgangur í vorferð

4. árgangur skellti sér í rútu frá Vallaskóla kl. 8:30 og lá leiðin í Heiðmörk þar sem brugðið var á leik, farið í göngu og nestið borðað. Þá var haldið á Árbæjarsafnið þar sem hópnum var skipt í tvennt og fengu hóparnir leiðsögn um safnið.

Vel heppnuð og skemmtileg ferð.