Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 20. sinn mánudaginn 28. maí 2018. Keppnin fer fram á frjálsíþróttavellinum á Selfossi.
Klukkan 16:30 hefst keppni í 1.- 2.bekk, klukkan 17:15 hefst keppni í 3.-4.bekk. Spjótkast hjá strákum í 7.-10.bekk hefst klukkan 16:30 og spjótkast hjá stelpum í 7.-10.bekk hefst klukkan 17:15. Keppni í spretthlaupi, kúluvarpi og langstökki hjá 5.-10.bekk hefst klukkan 18:00.
Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum:
1. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)
2. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)
3. bekkur- 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)
4. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)
5. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)
6. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp (2kg/3kg)
7.- 8. bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp(3kg/4kg) og spjótkast (400gr/600gr)
9.-10. bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp (3kg/5kg) og spjótkast (600gr/700gr)
Allir í 1. – 4. bekk fá þátttökuverðlaun en veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í 5.- 10. bekk.
Hver keppandi í 1.- 4. bekk fær 2 tilraunir bæði í langstökki og kúluvarpi. Í 5.-10. bekk fær hver keppandi 3 tilraunir í kúluvarpi og langstökki auk þess sem keppendur í spjótkasti fá 3 tilraunir.
Sú nýjung er í ár að keppendur í 1.-4.bekk skrá sig á staðnum, en keppendur í 5.-10.bekk þurfa að skrá sig minnst tveimur dögum fyrir keppni.
Skráningum skal skila eigi síðar en mánudaginn 16. maí á netfangið helgihar@simnet.is eða til íþróttakennara/ritara eða á viðburðarsíðu mótsins á facebook (Grunnskólamót Árborgar)
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í símum 482-3182 / 892-7052 eða á netfanginu helgihar@simnet.is